Sundlaugin Laugaskarði
- Laugaskarði, 810 Hveragerði
„Sundlaugin var byggð í sjalfboðavinnu og var vatni hleypt í hana í júnímánuði árið 1938. Unmennafélag Ölfushrepps beitti sér hvað mest fyrir því að laugin var gerð og lögðu félagmenn fram mikla vinnu í verkið. Lárus Rist sundkappi flutti til Hveragerði árið 1936 og hann var mikill liðsauki og tók forystu við uppbyggingu laugarinnar og réði meðal annars um staðarvalið. Um tíma var laugin stærsta sundlaug landsins og íslenska landslðið í sundi æfði í lauginni allt til ársins 1966 þegar laugardalslaugin í Reykjavík kom til sögunnar.Auka upplýsingar
Upphaflega var laugin aðeins 25 metrar en er nú 50 metra löng og 12 metrar á breidd. Laugin er svokölluð gegnumrennslislaug og er hituð upp með jarðgufu sem tryggir eðlilegt sýrustig og hreinleika vatnsins. Í lauginni er heit og grunn setlaug ásamt heitum potti með rafmagnsnuddi og svo er að finna þarna nátturulegt gufubað. Laugin er í fallegu umhverfi og góðu skjóli. Alltaf er gæslumaður á vakt og svo er einnig sjónvarpskerfi þar sem hægt er að fylgjast með og tryggja öruggi sundgesta eins vel eins og hægt er.
Hveragerðisbær annast rekstur og viðhald á sundlauginni“ – Fréttablaðið
Tjaldsvæði í nágrenninu
Afgreiðslutími
Sumaropnun 15. maí til 14. sept
- Mánudaga – föstudaga: 06:45- 21:30
- Laugar- og sunnudaga: 09:00 – 19:00
Vetraropnun, 15. sept til 14. maí
- Mánudaga til föstudaga: 06:45- 20:30
- Laugar – og sunnudaga: 10:00-17:30
Gjaldskrá - Frekari upplýsingar
- 67 ára og eldri fá frítt
- Börn og ungmenni undir 18 ára búsett í Hveragerði fá frítt.