Sundlaug Grímseyjar

Sundlaugin í Grímsey er innilaug, en þar sem enginn jarðhiti er í eyjunni þarf að hita upp allt vatn. Laugin er 12,6m x 6m en þar er einnig heitur pottur og gufubað.

Hvernig er hægt að komast til Grímseyjar?
Með ferju
Ferjan Sæfari fer frá Dalvík kl 09:00 3-5 daga í viku eftir árstíma. Sæfari kemur til Grímseyjar um klukkan 12. Brottför frá Grímsey er kl 14:00 á veturna og 16:00 – 17:00 yfir sumarið.
Frekari upplýsingar eru á vef Samskips.
Bókanir í síma: 458-8970.

Með flugi
Flugfélagið Norlandair flýgur frá Akureyri til Grímseyjar þrisvar í viku á veturna og daglega á sumrin. Á veturna er flogið á þriðjudögum kl 9:30 og föstudögum og sunnudögum kl. 13:00.

Bókanir í síma: 414 6960 eða á vef Norlandair.

 

Afgreiðslutími

Afgreiðslutími:

  • Mánudaga – föstudaga:  17:00 – 18:15
  • Laugardaga og sunnudaga:  Lokað

Gjaldskrá - Frekari upplýsingar

Öryrkjar fá frítt í sund gegn framvísun gilds örorkuskírteinis
Börn byrja á greiða 1. júní árið sem þau verða 6 ára
10 skipta kort gilda í 24 mánuði.
30 skipta kort gilda í 36 mánuði.
Öll kort sem keypt eru í Sundlauginni í Grímsey gilda líka í Sundlaug Akureyrar, Glerárlaug og Sundlaugina í Hrísey.

[tablefield field-name="gjaldskra-verd" table-class="my-table"]

Staðsetning