Sundlaug Akureyrar
- Þingvallastræti 21, 600 Akureyri
Sundlaug Akureyrar er vatnaparadís á heimsmælikvarða fyrir alla fjölskylduna. Á svæðinu er að finna tvær 25m útisundlaugar, fimm heita potta, þar af einn nuddpott, sólbaðssvæði, vaðlaug, eimbað, kalt ker og þrjár rennibrautir, þar á meðal lengstu vatnsrennibraut á Íslandi.
Sundlaug Akureyrar nýtur mikilla vinsælda hjá heimamönnum og ferðamönnum.
Í öllum klefum eru læstir skápar og í boði eru bæði inni- og útiklefar, í inniklefum eru tölvulæstir skápar með númerakerfi og í útiklefum eru munaskápar með sams konar kerfi. Athugið að korthafar World Class fá frítt í sund aðeins þegar þeir nota búningsklefa World Class.
Öllum gestum er gert að þvo sér án sundfata áður en gengið er til laugar.
Aðgengi fyrir alla
Í Sundlaug Akureyrar er í boði einstaklingsklefi á 2. hæð byggingarinnar. Einstaklingsklefinn er aðgengilegur fyrir fatlaða og lyfta er á milli hæða. Í klefanum eru læstir skápar, hreyfanlegur bekkur og handsturta með stuðningshandfangi. Stuðningshandföng eru einnig við klósett.
Einstaklingsklefinn er opinn öllum sem um hann biðja.
Segllyfta er í boði í Sundlaug Akureyrar og einnig stólalyfta að innilaug, báðum útilaugunum og stórum heitum potti sem er 38°C.
Lyfta fyrir hjólastóla er að innipottinum og eldra sundlaugarkarinu.
Tjaldsvæði í nágrenninu
Afgreiðslutími
Sumaropnun 4. júní til 22. ágúst 2022
- Mánudaga – föstudaga: 06:45 – 21:00
- Laugardaga: 08:00 – 21:00
- Sunnudaga: 08:00 – 19:30
Vetraropnun, 23. ágúst til 2. júní 2022
- Mánudaga – föstudaga: 06:45 – 21:00
- Laugardaga: 09:00 – 19:00
- Sunnudaga: 09:00 – 19:00
Afgreiðslutími um páska 2022
- 10. apríl Pálmasunnudagur 09:00 – 19:00
- 11. apríl Mánudagur 06:45 – 21:00
- 12. apríl Þriðjudagur 06:45 – 21:00
- 13. apríl Miðvikudagur 06:45 – 21:00
- 14. apríl Skírdagur 09:00 – 19:00
- 15. apríl Föstudagurinn Langi 09:00 – 19:00
- 16. apríl Laugardagur fyrir Páska 09:00 – 19:00
- 17. apríl Páskadagur 09:00 – 19:00
- 18. apríl Annar í Páskum 09:00 – 19:00
Aðrir hátíðisdagar 2022
- 21. apríl Sumardagurinn fyrsti 09:00 – 19:00
- 1. maí Baráttudagur verkalýðsins Lokað
- 26. maí Uppstigningardagur 09:00 – 19:00
- 5. júní Hvítasunnudagur 08:00 – 19:30
- 6. júní Annar í Hvítasunnu 08:00 – 19:30
- 17. júní Þjóðhátíðardagurinn Lokað
- 1. ágúst Frídagur Verslunarmanna 08:00 – 19:30
Jól og áramót 2022 – 2023
- 23. des Þorláksmessa 06:45 – 18:00
- 24. des Aðfangadagur Jóla 08:45 – 12:00
- 25. des Jóladagur Lokað
- 26. des Annar í Jólum 11:00 – 19:00
- 27. des Þriðjudagur 06:45 – 21:00
- 28. des Miðvikudagur 06:45 – 21:00
- 29. des Fimmtudagur 06:00 – 21:00
- 30. des Föstudagur 06:45 – 21:00
- 31. des Gamlársdagur 08:45 – 12:00
- 1. jan Nýársdagur Lokað
- 2. jan Mánudagur 06:45 – 21:00
Gjaldskrá - Frekari upplýsingar
Öryrkjar fá frítt í sund gegn framvísun gilds örorkuskírteinis.
Börn byrja á greiða 1. Júní árið sem þau verða 6 ára.
Hver áfylling 10 miða korts gildir í 24 mánuði.
Hver áfylling 30 miða korts gildir í 36 mánuði.
Rafrænt handhafakort fæst endurgreitt þegar því er skilað.
Árskort keypt í Sundlaug Akureyrar gilda líka í Glerárlaug, Sundlaugina í Hrísey og Sundlaugina í Grímsey. Rafræn skiptakort gilda bara í Sundlaug Akureyrar.