Ylströndin í Nauthólsvík er manngerð strönd með heitum potti, upphitað sjávarlón og vaðlaug. Ylströndin hefur fest sig í sessi sem paradís í borgarlandinu og á góðum sumardögum flykkjast innlendir sem erlendir gestir á ylströndina.
Aðstaðan er mjög góð en þar er þjónustumiðstöð með búnings – og sturtuaðstöðu. Þar er einnig veitingasala og grillaðstaða. Fyrir framan þjónustumiðstöðina er svo löng setlaug.
Hitastig:
- Setlaug; 38°C
- Heitur pottur í sjávarmálinu: 30 – 39°C
- Sjávarlón innan grjótgarða: 15 – 19°C (eingöngu upphitað á opnunartíma yfir sumarmánuði)
Afgreiðslutími
Opnunartími:
- Virkir dagar: 11:00 – 19:00
- Laugardaga: 11:00 – 16:00
- Sunnudaga: Lokað
Gjaldskrá - Frekari upplýsingar
Athugið! Yfir sumartímann sem er frá 15. maí – 15. ágúst er frír aðgangur að búningsklefum, sturtum, potti og eimbaði.
*Vorpassi gildir frá 1 jan – 14 maí.
**Haustpassi gildir frá 16 ágúst til 31 des
[tablefield field-name="gjaldskra-verd" table-class="my-table"]